Far og sæk!

Nýjung fyrir heimavinnandi starfsmenn. Nú getur þú sótt matinn þinn beint á staðinn eða í sumum tilfellum fengið hann sendann heim að dyrum gegn vægu gjaldi.

Far og sæk!

Nú býðst Maulurum nær og fjær að sækja mat sinn sjálf. Um þessar mundir eru ófáir sem vinna heima vegna vírusvarna fyrirtækja sinna. Til að koma til móts við þá bjóðum við nú upp á að merkja við hvort þú viljir matinn sendann á vinnustaðinn eða hvort þú viljir sækja hann beint á veitingastaðinn þann daginn.

Þetta hljómar kannski allt hálf-afkáralega komandi frá útkeyrsluþjónustu, en við sjáum að fjölmargir eru að vinna að heiman og gætu hugsað sér að njóta þess áfram að hafa aðgang að okkar fjölbreytta og góða úrvalsfæði. Fjölmargir veitingastaða okkar bjóða einnig afslátt af næstu máltíð ef pantaðar eru fleiri réttir. Svo eru margir þeirra farnir að bjóða upp á heimsendingu líka.

Nánari upplýsingar um veitingastaði okkar finnur þú með því að smella á upplýsingasíðu þeirra frá aðgangnum þínum í pantanakerfinu eða skoðað meldað þig inn á upplýsingakerfi okkar community.maul.is. Einnig getur þú fundið upplýsingasíður með því að smella á veitingastaðinn neðst á heimasíðu okkar maul.is

Hér eru nokkrar upplýsingasíður sem við höfum uppfært. Við erum að safna upplýsingum og uppfærum eftir getu...

Bergsson mathús
Bragðlaukar
BrewDog
Chido
Gallery fiskur
Hraðlestin
Nam
Matpakkar
Ostabúðin
Ramen Momo
Spríran
Súpunördarnir

Ef þið hafið samband við okkur með dagsfyrirvara getum við komið því þannig fyrir að hægt sé að sækja matinn í Síðumúla 27. Við erum í 519-2939 og í maul@maul.is.